Sunddeild Hamars æfir í sundlauginni Laugaskarði.
Eldri krakkarnir hafa einnig frjálst val um að mæta á laugardagsæfingar á Selfossi kl. 9:30.
Áhersluþættir Sunddeildar Hamars:
Sund er skemmtileg alhliða þjálfun sem byggir á góðri tækni, mýkt, liðleika, styrk og úthaldi.
Öll þjálfun í deildinni er einstaklingsmiðuð.
Áhersluþættir í þjálfun yngri hóps eru:
- Agi
- Virðing
- Samvinna
- Samhæfing
- Líkamsburður
- Sundtækni allra sundaðferða
- Þol
- Leikir og gleði
Áhersluþættir í þjálfun eldri/keppnis hóps eru allt ofantalið en auk þess:
- Sérhæfð tækni
- Keppnisþjálfun
- Sprettþol
- Loftháð þol