Krakka og unglingablak
Seinasta vetur bauð blakdeild Hamars uppá blakæfingar fyrir krakka og unglinga. Um 25 krakkar komu á æfingar og skipt var í eldri og yngri hóp.
Í vetur býður Blakdeild Hamars uppá aftur uppá æfingar í tveimur aldursflokkum á eftirfarandi dögum:
Mánudaga og miðvikudaga í Hamarshöllinni:
15:00-16:00- 11 ára og yngri (3. og 4. flokkur)
16:00-17:00- 12 ára og eldri (5. og 6. flokkur)
Æfingar hefjast mánudaginn 9. september.
Þjálfari í vetur er Guðbergur Egill Eyjólfsson. Guðbergur Egill lék blak með HK, ÍS og KA og með landsliðum Íslands 1990-1999. Hann varð m.a. nokkrum sinnum Íslands- og bikarmeistari með HK og ÍS. Guðbergur er nýfluttur í Hveragerði og mun jafnframt þjálfa meistaraflokka Þróttar í Reykjavík, karla og kvenna. Netfang þjálfara: hleskogar@hleskogar.is. Gsm : 863-3112
Blak er skemmtileg íþrótt sem stunduð er um allt land.
Opnir kynningatímar verða í byrjun og svo skráning á skráningardegi sem auglýstur verður síðar.
Nánari upplýsingar má sjá á www.hamarsport.is/blak.
Verið velkomin á blakæfingu.
Í eftirfarandi linkum á Youtube má sjá blak í sinni bestu mynd:
Brazil wins Women’s London 2012 Olympics: http://www.youtube.com/watch?v=mpRxavivngI
Mens volleyball final London Olympics 2012: http://www.youtube.com/watch?v=ovujPi4vUQ4