ÆFINGATAFLA VETUR 2024 | KÖRFUBOLTADEILD HAMARS
Mánudagur | Þriðjudagur | Miðvikudagur | Fimmtudagur | Föstudagur | Laugardagur | Sunnudagur | |
Karfa – Kríli 3-5 ára | 11:00-12:00 | ||||||
Fjölgreina – Karfa 1-2 bekkur | 13:30-14:20 | ||||||
MB 8-11 kvk 3-5 bekkur | 14:20-15:10 | 14:30-15:30 | 14:15-15:00 | ||||
MB 8-11 kk 3-5 bekkur | 14:20-15:10 | 14:15-15:00 | 13:20-14:10 | ||||
7-8 fl kvk 7-8 bekkur | 17:00-18:00 | 15:30-17:00 | 17:00-18:15 – ÞH | 15:00-16:30 | |||
7-8 fl kk 7-8 bekkur | 16:20-17:30 | 18:00-19:30 – ÞH | 15:30-17:00 | 13:30-15:00 | |||
9-10 fl kk 9-10 bekkur | 15:10-16:20 | 18:45-20:00 – ÞH | 20:30-22:00 | 16:30-18:00 | 16:30-18:00 | ||
12 flokkur | 16:30-18:00 | ||||||
ÞH = Þorlákshöfn |
FRÉTTIR | KÖRFUBOLTADEILD HAMARS
10. flokkur kvenna
Helgin var viðburðarík hjá yngri flokkum Hamars og var farið um víða vegu í keppnisferðir Stelpurnar í 10. Flokki voru að spila á Hvammstanga þar sem þær öttu kappi við Snæfell og sameiginlegt lið Kormáks og Tindastóls. Það er óhætt að segja að stelpurnar hafi verið afskaplega heppnar með keppnishelgi þar sem Hvalfrjarðargönginn voru lokuð og farið var nokkur ár aftur í tíman og Hvalfjörðurinn keyrður. Það er þó með þetta eins og önnur keppnisferðalög að ef góða skapið er með í för það verður allt miklu léttara og það var rauninn að þessu sinni. Því miður vanns ekki sigur í þessari ferð en allri komu þó sáttir heim J
-Hamar – Snæfell 29-53
-Hamar – Kormákur/Tindastóll 34-53
9. flokkur karla
Strákarnir í 9. Flokk Hamars þurftu að fara aðeins styttra en stelpurnar í 10. Flokk og var þeirra mót haldið í íþróttahúsi kennaraháskólans í Reykjavík. Strákarnir þurftu að byrja í D-riðli þar sem Hamar dróg lið sitt úr keppni síðastliðinn vetur og til að gera langa sögu stutta þá unnu strákarnir alla sína leiki örugglega og spila því í C-riðli næst, frábært hjá strákunum og vonandi gengur jafnvel á næsta móti.
-Hamar – Ármann 62-53
-Hamar – KFÍ 68-28
-Hamar – Njarðvík b 63-44
7. flokkur kvenna
Stelpurnar í 7. Flokki spila í sameiginlegu lið með Hrunamönnum og voru þær að spila í A-riðli, mótið var haldið að Flúðum og voru spilaðir tveir leikir á laugardag og tveir leikir á sunnudag. Á laugardeginum spiluðu stelpurnar fyrst við KR þar sem öruggur sigur vannst og eftir það spiluðu þær við ríkjandi Íslandsmeistara úr Grindavík þar sem um hörkuleik var að ræða, stelpurnar töpuðu leiknum með þremur stigum en geta verið virkilega stoltar og sýndu svo sannarlega að þarna eru fullt af efnilegum stúlkum á ferðinni. Sunnudagurinn hófst svo á leik við Keflavík þar sem okkar stelpur virtust ekki alveg vera komnar á fætur og tapaðist hann því miður en gengur bara betur næst. Síðast leikurinn á mótinu var síðan gegn Njarðvík og þar var sigur okkar stúlkna aldrei í hættu og góður endir á góðri helgi sem fer svo sannarlega í reynslubankann hjá stelpunum.
-Hrunnamenn/Hamar – KR 77-12
-Hrunamenn/Hamar – Grindavík 39-42
-Hrunamenn/Hamar – Keflavík 21-34
-Hrunamenn/Hamar – Njarðvík 44-38
Minni bolti karla
Hamar-Hrunamenn og Þór senda sameiginlegt lið til keppni í þessum aldurshópi og voru strákarnir að keppa í Stykkishólmi, spilaðir voru tveir leikir á laugardag og tveir leikir á sunnudag. Strákarnir voru að spila í B-riðli og annsi mörg stór félög sem keppt var við, á laugardeginum var byrjað á að spila við Fjölni þar sem öruggur sigur okkar manna var staðreynd og allt í blóma. Seinni leikurinn á laugardeginum var síðan gegn Njarðvík og okkar menn enn í gírnum og öruggur sigur staðreynd og frábær laugardagur að kveldi kominn. Á sunnudeginum var síðan fyrri leikurinn við Grindavík og fyrirfram ljóst að erfit verk væri fyrir höndum, strákarnir stóðu sig hinsvegar frábærlega og lönduðu fjögura stiga sigri og allt í blóma líkt og Blómstrandi dögum í Hveragerði J. Síðasti leikurinn hjá strákunum var síðan við Snæfell og fyrir hann orðið ljóst að okkar strákar væru búnir að tryggja sér sæti í A-riðli og auðvitað kláruðu strákarnir verkið með sóma þar sem öruggur sigur á Snæfell var staðreynd. Frábærri helgi lokið og allir gátu haldið sáttir heim J
-Hrunamenn/Þór/Hamar – Fjölnir 53-28
-Hrunamenn/Þór/Hamar – Njarðvík 75-29
-Hrunamenn/Þór/Hamar – Grindavík 35-31
-Hrunamenn/Þór/Hamar – Snæfell 59-36
Hamarsliðið heldur sigurgöngu sinni áfram í 1.deild karla og eru nú eina liðið sem ekki hefur tapað leik í deildinni. Fyrsti heimaleikurnn var í gær þegar nágrannar okkar frá Selfossi kíktu í frystikistuna. Fyrir leikinn höfðu strákarnir unnið Val og Breiðablik úti nokkið örugglega. FSu liðið mætti gríðarlega vel stemmt til leiks og virtist sem okkar menn væri ekki tilbúnir í verkefnið. Þegar tvær mínútur voru eftir af 1.leikhluta voru gestirnar frá Selfossi með 11-20 forustu og leiddu 14-20 þegar 2.leikhluti hófst.
Spennustigið í leiknum var hátt og nokkuð harður leikur sem dómararnir höfðu fín tök á. Hamarsstrákarnir fóru að bíta meira frá sér í 2.leikhluta og voru ákveðnari en í 1.leikhluta. Gestirnir voru samt alltaf með frumkvæðið en Hamar var tvisvar yfir í þessum leikhluta en FSu náðið alltaf forustunni aftur og þegar flautann gall í fyrrihálfleik hafði FSu 33-38 verðskuldað forustu.
Eins og í 1.leikhluta virtust strákarnir ekki tilbúnir í 3.leikhlutann og FSu hafði áfram forustuna. Þegar fjórar mínútur voru búnar af 3.leikhluta voru gestirnir með 45-56 forustu en sem betur fer vöknuð okkar drengir á þessum tímapunkti í leiknum og fóru að þjarma að Selfissingum. Varnarleikurinn batnaði og sóknin fór að ganga eins og góður Kjörís Hlunkur. Hamarsliðið náði að jafna leikinn áður en 3. leikhluta lauk og loksins var liðið farið að sýna sitt rétta andlit. Staðan fyrir síðasta hlutan jöfn 65-65.
4.leikhlutinn var spennandi en varð kannski ekki eins spennandi og margir í húsinu hédlu þegar hann hófst. Nú fór reynslan kannski að segja til sín en í okkar röðum eru strákar sem hafa kannski meiri reynslu en ungt og efnilegt FSu-lið. Það kom á daginn í stöðunni 70-74 fyrir FSu sögðu Hamarspiltar hingað og ekki lengra og gerðu útum leikinn á næstu þremur mínútum og skoruð 12 stig gegn engu hjá FSu og staðn allt í einu 82-74. Þá var aðeins formsatriði að klára leikinn þegar þarna var komið við sögu. Lokstaðan 84-78 sigur Hamarsmanna.
Gaman var að sjá hversu góð mæting var á þennan leik og stemmingin á leiknum var góð. Strákarnir vilja þakka þeim sem komu og hvetja alla til að mæta á leiki í vetur en þeir lofa tómlausri skemmtun og gleði.
Julian Nelson átti mjög góðan leik í gær og setti niður 34 stig þar af 19 í seinni hálfleik. Hann tók að auki 8 fráköst og var með 27 framlagsstig. Fyrirliðinn Halldór Gunnar Jónsson fór fyrir liðinu í seinasta leikhlutanum og setti niður þrjár mikilvægar 3. stiga körfu og hann endaði leikinn með 19 stig, 4 fráköst og 18 framlagstig. Stálhamarinn Þorsteinn Gunnlaugsson skilaði sínu og gott betur með 13 stig, 14 fráköst og 27 framlagsstig auk þess að spila frábæran varnarleik á Collin Pryor og hélt honum í aðeins 14 stigum sem er lítið á þeim bænum. Bjarni Rúnar Lárusson spilaði mjög vel í seinni hálfleik og skoraði 4 stig, tók 6 fráköst og var með 7 framlagsstig. Klárlega framlög úr öllum áttum og allir þeir sem komu við sögu í leiknum skiluðu sínu en leikmenn liðsins verða gera sér grein fyrir því að þetta gerist ekki af sjálfu sér og það verður að hafa fyrir öllum sigrum í þessari deild.
Næsti leikur er bikarleikur um komandi helgi við Álftanes úti en næsti leikur í deild er ekki fyrr en 7. nóvember á Egilstöðum.
Áfram Hamar!
Á morgun er fyrsti heimaleikurinn hjá Hamarsstrákunum í 1.deildinni þetta tímabilið og það er enginn smá leikur! Sannur suðurlandsslagur þegar FSu kemur í heimsókn í frystikisuna og hefst leikurinn kl: 19:15.
Strákarnir hafa farið vel af stað í Íslandsmótinu og unnið báða útileikina gegn Val og Breiðabliki. FSu hefur unnið einn af sínum leikjum og tapað einum. Þetta eru ávalt svaka leikir þegar þessi tvö lið mætast og það verður enginn svikinn af því að mæta í frystikistuna á morgun.
Fyrir þá fáu sem ekki komast geta horft á leikinn á þessum link http://www.hamarsport.is/korfubolti/hamar-tv/
Áfram Hamar!
STJÓRN & ÞJÁLFARAR 2024-2025 | KÖRFUBOLTADEILD HAMARS
“The most important thing is to try and inspire people so that they can be great in whatever they want to do.”
– Kobe Bryant
Stjórn
NAFN | HLUTVERK | NETFANG |
---|---|---|
Tryggvi Hofland | Formaður | hofland76@internet.is |
Tinna Rós Vilhjálmsdóttir | Gjaldkeri | tinnaros13@gmail.com |
Bjarney Sif Ægisdóttir | Ritari | bjarney29@gmail.com |
Berglind Karen Ingvarsdóttir | Meðstjórnandi | berglindkaren4@gmail.com |
Sveinbjörn Skúlason | Meðstjórnandi | svenniskula30@gmail.com |
MEISTARAFLOKKSRÁÐ KARLA
NAFN | HLUTVERK | NETFANG |
---|---|---|
MEISTARAFLOKKSRÁÐ KVENNA
NAFN | HLUTVERK | NETFANG |
---|---|---|
YNGRIFLOKKARÁÐ
NAFN | HLUTVERK | NETFANG |
---|---|---|
Íris Ásgeirsdóttir | irisasgeirs@hotmail.com | |
Berglind Karen Ingvarsdóttir | berglindkaren4@gmail.com | |
Katrín Sveinsdóttir | katrínsveins@hotmail.com | |
Íris Alma Össurardóttir | irisalmaossurardottir@gmail.com |
ÞJÁLFARAR
FLOKKAR | ÞJÁLFARI | SÍMI |
---|---|---|
Meistaraflokkur karla | Halldór Karl Þórsson | |
Meistaraflokkur kvenna | Hákon Hjartarsson | |
Meistaraflokkur karla B | ||
9.-10. flokkur karla | ||
7.-8 flokkur karlaSveinbjörn Skúlason | ||
Míkróbolti 10-11 ára kk | ||
Míkróbolti 10-11 ára kvk | ||
Mikróbolti 3.-4. bekkur kk | ||
Mikróbolti 3.-4. bekkur kvk | ||
Mikróbolti 1.-2. bekkur |
LÖG | KÖRFUBOLTADEILD HAMARS
1. Kafli um körfuknattleiksdeild Hamars
1. grein. Félagið er hluti af Íþróttafélaginu Hamri, og sinnir körfuknattleik innan þess félags. Körfuknattleiksdeild Hamars hefur aðsetur sitt í Hveragerði á Suðurlandi.
2. grein. Merki félagsins er: Sjá á forsíðu
3. grein. Keppnisbúningur og æfingabúningur félagsins skal vera í bláum og hvítum aðallitum með hvítri áletrun og merki félagsins í vinstri barmi. Meistaraflokkum félagsins er heimilt að útfæra ofangreinda aðalliti á keppnisbúningum að eigin vild, en þó fá staðfestingu stjórnar kkd Hamars. Heimilt er að setja á aðra búninga en keppnisbúninga, táknmerki viðkomandi deildar og flokks. 2. kafli Markmið Íþróttafélagsins Hamars
4. grein. Markmið félagsins eru:
a. Að efla áhuga á körfuknattleik, líkamsrækt og heilbrigðu líferni.
b. Að standa fyrir öflugu og faglegu íþrótta/körfuknattleiks- og félagsstarfi, sérstaklega meðal barna og unglinga.
c. Efla keppnis- og afreksíþróttir.
d. Að vinna gegn tóbaksreykingum, neyslu áfengis og vímuefna.
e. Að vinna að markmiðum og stefnuskrá Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Ungmennafélags Íslands með kjörorðunum „ÍSLANDI ALLT“.
5. grein. Körfuknattleiksdeild Hamars er aðili að íþróttafélaginu Hamri og þá um leið að Héraðssambandinu Skarphéðni (HSK), sem er aðili að Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍÓÍ) og Ungmennafélagi Íslands(UMFÍ).
3. kafli Félagar
6. grein. Körfuknattleiksdeild er myndað af einstaklingum sem mynda ráð um iðkun karla, kvenna og yngri flokka í körfuknattleik og hafa sameiginlega aðalstjórn, sem er æðsti aðili körfuknattleiksdeildar milli aðalfunda.
7. grein. Félagi getur hver sá orðið sem æskir þess og greiðir árgjald (sé það innheimt) eða iðkenndagjald. Félagar skuldbinda sig til að fara að lögum félagsins, hlíta keppnisreglum og vera félaginu til sóma hvarvetna sem þeir koma fram á vegum eða fyrir hönd félagsins. Stjórn er heimilt að óska eftir þvi við aðalstjórn að víkja félaga úr félaginu hafi hann brotið gegn lögum félagsins eða álíti hún framkomu hans eða gjörðir að öðru leyti vítaverðar.
8. grein. Heimilt er að afla styrktarfélaga sem hafa öll sömu réttindi og aðrir félagar.
9. grein. Körfuknattleiksdeild Hamars hefur heimild til að innheimta árgjald félaga þó að fengnu samþykki aðalstjórnar Hamars. Skal það vera sama hjá öllum félögum og ákveðið á aðalfundi félagsins 4. kafli Deildir
10. grein. Körfuknattleiksdeild skal standa fyrir iðkun og eftir atvikum æfingum og keppni í körfuknattleik skv. skilgreiningu ÍÓÍ. Körfuknattleiksdeild skal halda sérstaka skrá yfir þá flokka sem starfandi eru innan félagsins hverju sinni. Til þess að flokkur teljist starfhæfur skal að jafnaði a.m.k. 5 félagar skráðir í viðkomandi flokk. Þó skal leyfa undantekningu sé flokkur starfræktur í samstarfi við annað félag.
11. grein. Hvert ráð innan körfuknattleiksdeildar Hamars hefur sérstaka stjórn og sér fjárhag. Stjórn hvers ráðs skal skipuð þrem til fimm mönnum; formanni, gjaldkera og ritara sem og allt að tveimur meðstjórnendum. Formaður körfuknattleiksdeildar er kosinn sérstaklega á aðalfundi og deildarstjórn ákveður verkaskiptingu meðstjórnenda á fyrsta stjórnarfundi. Kjörtímabil deildarstjórna er á milli aðalfunda körfuknattleiksdeildar. Skylt er að halda stjórnarfundi reglulega. Heimilt er að stofna unglingaráð innan körfuknattleiksdeildar sem skal sérstaklega sjá um og vinna að eflingu starfsins hjá börnum og unglingum. Unglingaráð starfar á vegum stjórnar deildarinnar og skal kosið í það á aðalfundi deildar eða skipun þess staðfest á aðalfundi. Unglingaráð hefur síðan heimild til að ráða yfirþjálfara sem sinnir daglegu starfi yngri flokka körfuknattleiksdeildar. Sé ekki starfandi unglingaráð skal stjórn körfuknattleiksdeildar ráða yfirþjálfara í starfið. Halda skal fjárhag unglingaráðs aðskildum frá öðrum fjárhag deildarinnar en áætlanir og ákvarðanir um fjáraflanir og ráðstöfun fjármuna skulu hljóta samþykki deildarstjórnar, og lúta að öllu leyti sömu skilmálum og gilda um fjármál deilda, sbr. m.a. ákvæði 13. greinar laga þessara. Að sama skapi er heimilt að stofna sérstök meistaraflokksráð sem lúta sömu skilyrðum og unglingaráð.
12. grein. Ráð körfuknattleiksdeildar skulu framfylgja samþykktum aðalfunda körfuknattleiksdeildar og ráða daglegum rekstri þeirra, þar á meðal ráða þjálfara og ákveða laun þeirra. Hvert ráð skal halda nákvæmt félaga- og
iðkendatal samkvæmt lögum og reglum UMFÍ og ÍÓÍ. Hver deild skal skila stjórn körfuknattleiksdeildar félagatali sínu fyrir 30 janúar ár hvert. Stjórn körfuknattleiksdeildar skal setja verklagsreglur um fjárreiður og bókhald félagsins og deilda þess og skal stjórn körfuknattleiksdeildar hafa eftirlit með því að þeim sé fylgt. Hverju ráði er skylt að leita samþykkis stjórnar körfuknattleiksdeildar ef hún hyggur á lántökur til reksturs deildar í lengri eða skemmri tíma. Hver ráð aflar fjár til sinnar starfsemi og hefur tekjur af: a. Árgjöldum flokks/a. b. Æfingagjöldum. c. Styrktarfélagsgjöldum. d. Ágóða af íþróttamótum viðkomandi ráðs. e. Lottótekjum skv. skiptareglum og öðru fjármagni til skipta. f. Öðrum tekjuöflunarleiðum sem ekki rekast á við starf annarra deilda. Deildarstjórn skal halda skýrslu um starf deildarinnar sem lögð skal fyrir aðalfund deildarinnar og afhent aðalstjórn til birtingar í ársskýrslu félagsins.
13. grein. Aðalfundir körfuknattleiksdeildar Hamars skal vera haldnid eigi síðar en 15. febrúar fyrir liðið starfsár. Atkvæðisrétt á aðalfundi körfuknattleiksdeildar hafa allir félagar/iðkendur deildarinnar, enda hafi þeir greitt öll lögboðin gjöld. Kjörgengir eru þó aðeins félagar deildarinnar sem náð hafa 15 ára aldri, nema til formanns og gjaldkera verða þeir að vera 18 ára. Til aðalfundar deildar skal boða með viku fyrirvara með auglýsingu á heimasíðu félagsins. Er hann löglegur sé löglega til hans boðað. Stjórn skal leggja fyrir aðalfund fjölfaldaða ársskýrslu, ársreikninga og fjárhagsáætlun. Dagskrá aðalfunda deilda skal vera sem hér segir:
1. Formaður deildarinnar setur fundinn.
2. Kosnir fundarstjóri og fundarritari.
3. Formaður leggur fram ársskýrslu deildarinnar
4. Gjaldkeri leggur fram og útskýrir endurskoðaða reikninga, sem síðan eru bornir undir atkvæði.
5. Gjaldkeri leggur fram fjárhagsáætlun til afgreiðslu.
6. Stjórnarkjör: a. Kosinn formaður. b. Kosnir meðstjórnendur
7. Önnur mál. Á aðalfundi deilda ræður meirihluti atkvæða úrslitum allra mála. Kosning deildarstjórna skal vera skrifleg, ef þurfa þykir. Ef atkvæði eru jöfn skal kosið bundinni kosningu og fáist enn ekki úrslit skal hlutkesti ráða.
14. grein Vanræki körfuknattleiksdeild að halda aðalfund á tilsettum tíma, skal framkvæmdastjórn félagsins boða til fundarins og sjá um framkvæmd hans. Sé deild lögð niður eða starfsemi leggst af tímabundið skal aðalstjórn fara með vald deildarinnar og fjármuni.
STUÐNINGSMANNAFÉLAG | KÖRFUBOLTADEILD HAMARS
Félagið hefur að markmiði sínu að styðja við bakið á meistaraflokkum Hamars í körfuboltanum og tryggja þeim sem breiðast og best bakland þegar kemur að æfingum og keppni í íþróttinni.
Hægt er að ganga í félagið með útfyllingu á umsóknarblaði og styrkja um leið félagið um vissa upphæð mánaðarlega en á móti kemur að félagsmenn í Stuðningsmannaklúbbnum fá frítt á heimaleiki Hamars.
Klúbburinn stuðlar að betri tengingu milli leikmanna, stjórnar og stuðningsmanna félagsins á ýmsa vegu.
Formaður Stuðningsmannaklúbbs Kkd. Hamars er Davíð Jóhann Davíðsson david@hbgrandi.is