ÆFINGATAFLA VETUR 2024 | KÖRFUBOLTADEILD HAMARS
Mánudagur | Þriðjudagur | Miðvikudagur | Fimmtudagur | Föstudagur | Laugardagur | Sunnudagur | |
Karfa – Kríli 3-5 ára | 11:00-12:00 | ||||||
Fjölgreina – Karfa 1-2 bekkur | 13:30-14:20 | ||||||
MB 8-11 kvk 3-5 bekkur | 14:20-15:10 | 14:30-15:30 | 14:15-15:00 | ||||
MB 8-11 kk 3-5 bekkur | 14:20-15:10 | 14:15-15:00 | 13:20-14:10 | ||||
7-8 fl kvk 7-8 bekkur | 17:00-18:00 | 15:30-17:00 | 17:00-18:15 – ÞH | 15:00-16:30 | |||
7-8 fl kk 7-8 bekkur | 16:20-17:30 | 18:00-19:30 – ÞH | 15:30-17:00 | 13:30-15:00 | |||
9-10 fl kk 9-10 bekkur | 15:10-16:20 | 18:45-20:00 – ÞH | 20:30-22:00 | 16:30-18:00 | 16:30-18:00 | ||
12 flokkur | 16:30-18:00 | ||||||
ÞH = Þorlákshöfn |
FRÉTTIR | KÖRFUBOLTADEILD HAMARS
Síðastliðinn laugardag fóru stúlkurnar okkar í Kópavoginn og spiluðu við Breiðablik, þetta var annar leikurinn með nýjan erlendann leikmann og smá spenna í hópnum fyrir leiknum þar sem Breiðablik hafði unnið fyrri leik þessara liða í Hveragerði. Það er óhætt að segja að aðeins hafi verið farið að fara um stuðningsmenn Hamars eftir fyrsta leikhluta því Breiðablik hafði tekið öll völd á vellinum síðustu tvær og hálfa mínúttuna og skorað síðustu tíu stig leikhlutans (20-12). Allt annað Hamarslið mætti hinsvegar til leiks í öðrum leikhluta og tóks stelpunum okkar að halda Breiðablik í sex stigum allan annan leikhluta á meðan okkar lið skoraði sextán stig. Það var því mun léttara yfr áhorfendum og stelpunum í hálfleik en verið hafði tíu mínúttum áður og leiddu Hamarsstúlkur í 26-28. Í þriðja leikhluta var nokkuð jafnræði með liðunum þótt Hamar hafi unnið leikhlutan með fjórum stigum (44-50). Það var síðan í fjórða leikhluta sem leiðir skildu og þægilegum sextán stiga sigri landað (50-66) og vonandi verður þetta neistinn sem þarf til að kveikja í liðinu fyrir jólatörninna. Ekki er hægt að ljúka þessari umfjöllun án þess að minnast á flottan leik Kristrúnar Rutar sem skoraði 9 stig, klikkaði ekki á tveggja stiga skoti, gaf 5 stoðsendingar og reif til sín 4 fráköst, sannarlega flottur leikur hjá henni. Í lokinn er svo rétt að minna á næsta heimaleik hjá stelpunum sem er gegn Haukum á miðvikudag 3.des kl 19.15
Sydnei Moss 25 stig og 12 fráköst
Þórunn Bjarnad 11 stig og 3 fráköst
Kristrún Rut 9 stig, 4 fráköst og 5 stoðsendingar
Sallbjörg (Dalla) 8 stig og 9 fráköst
Sóley 5 stig og 10 fráköst
Heiða 6 stig og 6 fráköst
Helga Vala 2 stig
Ísfirðingar mættu borubrattir til Hveragerðis í kvöld eftir að hafa nælt í sinn annan sigur gegn Val í síðustu umferð, Hvergerðingar voru þó ekki að stressa sig á því enda höfðu Hamarsmenn unnið þrjá leiki í röð, og sex af síðustu sjö leikjum sínum. Liðin byrjuð nokkuð jafnt, en það voru þó gestirnir sem leiddu í byrjun og náðu mest sex stiga mun 10-16, Hamarsmenn voru ekki að hitta vel úr skotunum sínum gegn svæðisvörn KFÍ, en hvað er betra en að eiga Halldór Jónsson á bekknum þá, Halldóri var skipt inná um miðjan fyrsta leikhluta og enduðu Hamarsmenn leikhlutann með 20-8 sprett og staðan 30-24 eftir fyrsta fjóðung. Í öðrum leikhluta hélt Hamarsvélin áfram að malla og bættu þeir jafnt og þétt við forskotið staðan í hálfleik 54-38. Síðari hálfleikur hefur oft reynst Hamri erfiður en þeir eiga það oft til að detta niður í leik sínum, Það var þó ekki upp á teningnum í þetta skiptið, Strákarnir frá Hveragerði héldu áfram að valta yfir Ísfirðinga og sáust tölur eins og 67-43, 72-45 og þegar leikhlutanum lauk var munurinn 24 stig. 82-58. Síðasti leikhlutinn var því bara leikinn af skildunum einum og náðu Hvergerðingar í enn einn skyldusigurinn, Lokatölur 110-82. Atkvæða mestur hjá Hamri var sem fyrr Þorsteinn Gunnlaugsson með 27 stig og 15 fráköst, En Julian Nelson var einnig með 27 stig, 8 fráköst og 3 stoðsendingar, Allir lögðu þó sitt á vogaskálarnar hjá Hamri og skoruðu allir leikmenn liðsins, að fráskyldum Mikael Rúnari, Hjá KFÍ var það Nebojsa með 26 stig en aðrir minna.
Á morgun föstudag taka Hamarsmenn á móti Ísfirðingum í KFÍ og hefst leikurinn kl: 19:15. KFÍ hefur spilað sjö leiki í deildinni og unnið tvo á meðan Hamar hefur spilað sex leiki og unnið fimm.
Heil umferð fer fram í 1. deildinni á morgun og eftir þá leiki hafa öll liðin spilað við hvert annað en leikin er þreföld umferð á þessu keppnistímabili þar sem aðeins átta lið eru í deildinni.
Leikurinn hefst eins og áður sagði kl: 19:15.
Allir að fjölmenna í frystikistuna á morgun og styðja strákana :).
Áfram Hamar!
STJÓRN & ÞJÁLFARAR 2024-2025 | KÖRFUBOLTADEILD HAMARS
“The most important thing is to try and inspire people so that they can be great in whatever they want to do.”
– Kobe Bryant
Stjórn
NAFN | HLUTVERK | NETFANG |
---|---|---|
Tryggvi Hofland | Formaður | hofland76@internet.is |
Tinna Rós Vilhjálmsdóttir | Gjaldkeri | tinnaros13@gmail.com |
Bjarney Sif Ægisdóttir | Ritari | bjarney29@gmail.com |
Berglind Karen Ingvarsdóttir | Meðstjórnandi | berglindkaren4@gmail.com |
Sveinbjörn Skúlason | Meðstjórnandi | svenniskula30@gmail.com |
MEISTARAFLOKKSRÁÐ KARLA
NAFN | HLUTVERK | NETFANG |
---|---|---|
MEISTARAFLOKKSRÁÐ KVENNA
NAFN | HLUTVERK | NETFANG |
---|---|---|
YNGRIFLOKKARÁÐ
NAFN | HLUTVERK | NETFANG |
---|---|---|
Íris Ásgeirsdóttir | irisasgeirs@hotmail.com | |
Berglind Karen Ingvarsdóttir | berglindkaren4@gmail.com | |
Katrín Sveinsdóttir | katrínsveins@hotmail.com | |
Íris Alma Össurardóttir | irisalmaossurardottir@gmail.com |
ÞJÁLFARAR
FLOKKAR | ÞJÁLFARI | SÍMI |
---|---|---|
Meistaraflokkur karla | Halldór Karl Þórsson | |
Meistaraflokkur kvenna | Hákon Hjartarsson | |
Meistaraflokkur karla B | ||
9.-10. flokkur karla | ||
7.-8 flokkur karlaSveinbjörn Skúlason | ||
Míkróbolti 10-11 ára kk | ||
Míkróbolti 10-11 ára kvk | ||
Mikróbolti 3.-4. bekkur kk | ||
Mikróbolti 3.-4. bekkur kvk | ||
Mikróbolti 1.-2. bekkur |
LÖG | KÖRFUBOLTADEILD HAMARS
1. Kafli um körfuknattleiksdeild Hamars
1. grein. Félagið er hluti af Íþróttafélaginu Hamri, og sinnir körfuknattleik innan þess félags. Körfuknattleiksdeild Hamars hefur aðsetur sitt í Hveragerði á Suðurlandi.
2. grein. Merki félagsins er: Sjá á forsíðu
3. grein. Keppnisbúningur og æfingabúningur félagsins skal vera í bláum og hvítum aðallitum með hvítri áletrun og merki félagsins í vinstri barmi. Meistaraflokkum félagsins er heimilt að útfæra ofangreinda aðalliti á keppnisbúningum að eigin vild, en þó fá staðfestingu stjórnar kkd Hamars. Heimilt er að setja á aðra búninga en keppnisbúninga, táknmerki viðkomandi deildar og flokks. 2. kafli Markmið Íþróttafélagsins Hamars
4. grein. Markmið félagsins eru:
a. Að efla áhuga á körfuknattleik, líkamsrækt og heilbrigðu líferni.
b. Að standa fyrir öflugu og faglegu íþrótta/körfuknattleiks- og félagsstarfi, sérstaklega meðal barna og unglinga.
c. Efla keppnis- og afreksíþróttir.
d. Að vinna gegn tóbaksreykingum, neyslu áfengis og vímuefna.
e. Að vinna að markmiðum og stefnuskrá Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Ungmennafélags Íslands með kjörorðunum „ÍSLANDI ALLT“.
5. grein. Körfuknattleiksdeild Hamars er aðili að íþróttafélaginu Hamri og þá um leið að Héraðssambandinu Skarphéðni (HSK), sem er aðili að Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍÓÍ) og Ungmennafélagi Íslands(UMFÍ).
3. kafli Félagar
6. grein. Körfuknattleiksdeild er myndað af einstaklingum sem mynda ráð um iðkun karla, kvenna og yngri flokka í körfuknattleik og hafa sameiginlega aðalstjórn, sem er æðsti aðili körfuknattleiksdeildar milli aðalfunda.
7. grein. Félagi getur hver sá orðið sem æskir þess og greiðir árgjald (sé það innheimt) eða iðkenndagjald. Félagar skuldbinda sig til að fara að lögum félagsins, hlíta keppnisreglum og vera félaginu til sóma hvarvetna sem þeir koma fram á vegum eða fyrir hönd félagsins. Stjórn er heimilt að óska eftir þvi við aðalstjórn að víkja félaga úr félaginu hafi hann brotið gegn lögum félagsins eða álíti hún framkomu hans eða gjörðir að öðru leyti vítaverðar.
8. grein. Heimilt er að afla styrktarfélaga sem hafa öll sömu réttindi og aðrir félagar.
9. grein. Körfuknattleiksdeild Hamars hefur heimild til að innheimta árgjald félaga þó að fengnu samþykki aðalstjórnar Hamars. Skal það vera sama hjá öllum félögum og ákveðið á aðalfundi félagsins 4. kafli Deildir
10. grein. Körfuknattleiksdeild skal standa fyrir iðkun og eftir atvikum æfingum og keppni í körfuknattleik skv. skilgreiningu ÍÓÍ. Körfuknattleiksdeild skal halda sérstaka skrá yfir þá flokka sem starfandi eru innan félagsins hverju sinni. Til þess að flokkur teljist starfhæfur skal að jafnaði a.m.k. 5 félagar skráðir í viðkomandi flokk. Þó skal leyfa undantekningu sé flokkur starfræktur í samstarfi við annað félag.
11. grein. Hvert ráð innan körfuknattleiksdeildar Hamars hefur sérstaka stjórn og sér fjárhag. Stjórn hvers ráðs skal skipuð þrem til fimm mönnum; formanni, gjaldkera og ritara sem og allt að tveimur meðstjórnendum. Formaður körfuknattleiksdeildar er kosinn sérstaklega á aðalfundi og deildarstjórn ákveður verkaskiptingu meðstjórnenda á fyrsta stjórnarfundi. Kjörtímabil deildarstjórna er á milli aðalfunda körfuknattleiksdeildar. Skylt er að halda stjórnarfundi reglulega. Heimilt er að stofna unglingaráð innan körfuknattleiksdeildar sem skal sérstaklega sjá um og vinna að eflingu starfsins hjá börnum og unglingum. Unglingaráð starfar á vegum stjórnar deildarinnar og skal kosið í það á aðalfundi deildar eða skipun þess staðfest á aðalfundi. Unglingaráð hefur síðan heimild til að ráða yfirþjálfara sem sinnir daglegu starfi yngri flokka körfuknattleiksdeildar. Sé ekki starfandi unglingaráð skal stjórn körfuknattleiksdeildar ráða yfirþjálfara í starfið. Halda skal fjárhag unglingaráðs aðskildum frá öðrum fjárhag deildarinnar en áætlanir og ákvarðanir um fjáraflanir og ráðstöfun fjármuna skulu hljóta samþykki deildarstjórnar, og lúta að öllu leyti sömu skilmálum og gilda um fjármál deilda, sbr. m.a. ákvæði 13. greinar laga þessara. Að sama skapi er heimilt að stofna sérstök meistaraflokksráð sem lúta sömu skilyrðum og unglingaráð.
12. grein. Ráð körfuknattleiksdeildar skulu framfylgja samþykktum aðalfunda körfuknattleiksdeildar og ráða daglegum rekstri þeirra, þar á meðal ráða þjálfara og ákveða laun þeirra. Hvert ráð skal halda nákvæmt félaga- og
iðkendatal samkvæmt lögum og reglum UMFÍ og ÍÓÍ. Hver deild skal skila stjórn körfuknattleiksdeildar félagatali sínu fyrir 30 janúar ár hvert. Stjórn körfuknattleiksdeildar skal setja verklagsreglur um fjárreiður og bókhald félagsins og deilda þess og skal stjórn körfuknattleiksdeildar hafa eftirlit með því að þeim sé fylgt. Hverju ráði er skylt að leita samþykkis stjórnar körfuknattleiksdeildar ef hún hyggur á lántökur til reksturs deildar í lengri eða skemmri tíma. Hver ráð aflar fjár til sinnar starfsemi og hefur tekjur af: a. Árgjöldum flokks/a. b. Æfingagjöldum. c. Styrktarfélagsgjöldum. d. Ágóða af íþróttamótum viðkomandi ráðs. e. Lottótekjum skv. skiptareglum og öðru fjármagni til skipta. f. Öðrum tekjuöflunarleiðum sem ekki rekast á við starf annarra deilda. Deildarstjórn skal halda skýrslu um starf deildarinnar sem lögð skal fyrir aðalfund deildarinnar og afhent aðalstjórn til birtingar í ársskýrslu félagsins.
13. grein. Aðalfundir körfuknattleiksdeildar Hamars skal vera haldnid eigi síðar en 15. febrúar fyrir liðið starfsár. Atkvæðisrétt á aðalfundi körfuknattleiksdeildar hafa allir félagar/iðkendur deildarinnar, enda hafi þeir greitt öll lögboðin gjöld. Kjörgengir eru þó aðeins félagar deildarinnar sem náð hafa 15 ára aldri, nema til formanns og gjaldkera verða þeir að vera 18 ára. Til aðalfundar deildar skal boða með viku fyrirvara með auglýsingu á heimasíðu félagsins. Er hann löglegur sé löglega til hans boðað. Stjórn skal leggja fyrir aðalfund fjölfaldaða ársskýrslu, ársreikninga og fjárhagsáætlun. Dagskrá aðalfunda deilda skal vera sem hér segir:
1. Formaður deildarinnar setur fundinn.
2. Kosnir fundarstjóri og fundarritari.
3. Formaður leggur fram ársskýrslu deildarinnar
4. Gjaldkeri leggur fram og útskýrir endurskoðaða reikninga, sem síðan eru bornir undir atkvæði.
5. Gjaldkeri leggur fram fjárhagsáætlun til afgreiðslu.
6. Stjórnarkjör: a. Kosinn formaður. b. Kosnir meðstjórnendur
7. Önnur mál. Á aðalfundi deilda ræður meirihluti atkvæða úrslitum allra mála. Kosning deildarstjórna skal vera skrifleg, ef þurfa þykir. Ef atkvæði eru jöfn skal kosið bundinni kosningu og fáist enn ekki úrslit skal hlutkesti ráða.
14. grein Vanræki körfuknattleiksdeild að halda aðalfund á tilsettum tíma, skal framkvæmdastjórn félagsins boða til fundarins og sjá um framkvæmd hans. Sé deild lögð niður eða starfsemi leggst af tímabundið skal aðalstjórn fara með vald deildarinnar og fjármuni.
STUÐNINGSMANNAFÉLAG | KÖRFUBOLTADEILD HAMARS
Félagið hefur að markmiði sínu að styðja við bakið á meistaraflokkum Hamars í körfuboltanum og tryggja þeim sem breiðast og best bakland þegar kemur að æfingum og keppni í íþróttinni.
Hægt er að ganga í félagið með útfyllingu á umsóknarblaði og styrkja um leið félagið um vissa upphæð mánaðarlega en á móti kemur að félagsmenn í Stuðningsmannaklúbbnum fá frítt á heimaleiki Hamars.
Klúbburinn stuðlar að betri tengingu milli leikmanna, stjórnar og stuðningsmanna félagsins á ýmsa vegu.
Formaður Stuðningsmannaklúbbs Kkd. Hamars er Davíð Jóhann Davíðsson david@hbgrandi.is