Innanfélagsmót Hamars fer fram sunnudaginn 22. apríl 2012 í íþróttahúsinu í Hveragerði. Keppt verður í hópfimleikum þar sem allir hópar taka þátt. Ekki verða veitt sérstök verðlaun á mótinu heldur fá allir iðkendur viðurkenningu að móti loknu.
Skipulag móts:
10.15 Almenn upphitun + áhaldaupphitun (eldri hópar fá 3 umferðir á áhaldi)
11.00 Innmars – mót hefst
12.30 Móti lýkur – veittar viðurkenningar
- · T1, T2, T4, T5 og T6 keppa á þremur áhöldum (dans, fibergólf og trampolín).
- · T3 keppir á kistutrampolíni
- · T4 keppir 2 umferðir á dýnu og 3 á trampolín/“hest“
- · T5 keppir 1 umferð á dýnu og 1 umferð á trampolíni
- · T6 keppir 1 umferð á dýnu og 1 umferð á bretti
- · T7 og TS (strákar) gera eina umferð á fibergólfi og eina umferð á bretti