Laugardaginn 22. mars hélt meistaraflokkur Hamars hópa og firmakeppni. Það er hægt að segja að keppnin heppnaðist mjög vel og tóku tíu lið þátt eða allt að níutíu þáttakendur.
Þarna sáust mörg frábær tilþrif og margar gamlar kempur tóku þátt. Það sem stóð uppúr er að allir skemmtu sér vel og eingin meiddist. Einnig eru allir sammála um að ekki voru um nein ljót brot eða einhverskonar leiðindi að ræða.
Það er skemmst frá því að segja að liðið Brendan babes vann þetta mót með því að leggja lið Hermans Hreiðarssonar Stracta Hotels í úrslitaleik 3-1.
Lið Stracta Hotels endaði í öðru sæti.
Í þriðja sæti urðu svo kempunnar frá Kjörís sem lögðu lið Barnaverndarstofu 3-0. Barnaverndarstofa varð reyndar að gefa leikinn þar sem ekki náðist í lið hjá þeim þegar þarna var komið.
Lið Kjörís endaði í þriðja sæti.
Þorsteinn T. Ragnarsson sýnir frábær tilþrif í markinu.
Hér eru svo þau lið sem tóku þátt:
Brendan babes.
Stracta Hotels
Kjörís
Barnaverndarstofa
Jötunn Vélar
Hveragerðisbær
CF Hengill.
Arn-Verk ehf.
Dominos
Frost og Funi