Íþróttamenn Hamars ársins 2012
Á aðalfundi Íþróttafélagsins Hamars, sunnudaginn 3. mars 2012 var Marín Laufey Davíðsdóttir, körfuknattleikskona Hamars, krýnd íþróttamaður Hamars ársins 2012. Marín hefur leikið fyrir meistaraflokk Hamars í þrjú tímbil, þrátt fyrir ungan aldur, og hefur staðið með mikilli prýði. Hún leikur sem bakvörður og er einn af máttarstólpum liðsins. Auk Marínar voru útnefnd íþróttamenn hverrar deildar. Sú nýbreytni var tekin upp á aðalfundinum […]