Íslands- og bikarmeistarar Hamars í blaki karla, tóku á móti Aftureldingu í sínum fyrsta heimaleik á tímabilinu.
Hamarsmenn mættu vel stemmdir til leiks og áttu gestirnir afar erfitt uppdráttar í leiknum. Í öllum hrinum náði hamar forystu strax í upphafi og hélt henni út hrinuna. Fór svo að Hamar vann auðveldan sigur, 25-18, 25 – 14 og 25 – 20.
Maður leiksins: Hafsteinn Valdimarsson, fyrirliði Hamars
Stigahæstir: Wiktor Mielazarek og Jakub Madeij, Hamri og Sigþór Helgason, UMFA, allir með 11 stig.
Flestar blokkir:Hafsteinn Valdimarsson, Jakub Madej og Tomek Leik, Hamri, allir með 2 blokkir hver.