Aðalfundur Íþróttafélagsins Hamars verður haldinn þriðjudaginn 15. mars nk. kl 20:00 í Grunnskólanum í Hveragerði
FUNDARBOÐ
Íþróttafélagið Hamar heldur aðalfund í Grunnskólanum í Hveragerði þriðjudaginn 15. mars 2022 kl. 20.00
Fundarefni:
- Formaður setur fundinn.
- Kosinn fundarstjóri og fundarritari.
- Formaður flytur ársskýrslu félagsins.
- Gjaldkeri leggur fram reikninga félagsins til samþykktar.
- Umræður um skýrslu formanns og gjaldkera og reikningar félagsins bornir upp til
samþykktar. - Tillögur lagðar fyrir fundinn.
- Ávörp gesta.
- Verðlaunaafhending og lýst kjöri íþróttamanns Íþróttafélagsins Hamars.
- Kaffihlé
- Umræður og afgreiðsla tillagna
- Lagabreytingar.
- Gjaldkeri leggur fram fjárhagsáætlun aðalstjórnar til samþykktar og deilda til
staðfestingar. - Ákveðin árgjöld félagsins og deilda
- Stjórnarkjör
- Kosnir tveir skoðunarmenn.
- Önnur mál.
Verið velkomin
Stjórnin