Fimmta stigamót sumarsins fór fram í Hveragerði 10. og 11.ágúst sl. en þetta er í fyrsta sinn sem stigamót er haldið á völlum Hamarsmanna við sundlaugina í Laugarskarði. Fjöldi liða var mjög mikill þannig að spila þurfti eftir útsláttarfyrirkomulagi til að koma mótinu fyrir á einum og hálfum degi.
Í B-flokki kvenna voru 12 lið skráð til leiks, í A-flokki kvenna voru 8 lið. Í karlaflokki skráðu 3 lið sig í B-flokk og 6 í A-flokk. Flokkarnir voru sameinaðir í A-flokk með 9 liðum.
Margir jafnir og skemmtilegir leikir áttu sér stað bæði í karla- og kvennaflokkum og greinilegt að liðin eru að gera sig klár fyrir Íslandsmótið sem fram fer dagana 22. – 25. ágúst.
Vellirnir í Hveragerði eru á besta stað við sundlaug bæjarins. Þó nokkur renningur var af áhorfendum sem skemmtu sér konunglega. Ljósmyndari frá Hveragerði var á staðnum og tók margar skemmtilegar myndir. Hlekkir í þær myndir eru hér neðst á síðunni.
Úrslit urðu eftirfarandi:
Kvennaflokkur B-deild
1. sæti – Heiðbjört Gylfadóttir og Matthildur Einarsdóttir (HK)
2. sæti – Mundína Kristinsdóttir og María Ingimundardóttir (UMFA)
3. sæti – Þóra Hugosdóttir og Anna María Torfadóttir
Kvennaflokkur A-deild
1. sæti – Fríða Sigurðardóttir og Karen Björg Gunnarsdóttir (HK)
2. sæti – Natalía Rawa og Mariam Eradze (HK)
3. sæti – Berglind Gígja Jónsdóttir og Guðbjörg Valdimarsdóttir (HK)
Karlaflokkur
1. sæti – Ingólfur Hilmar Guðjónsson og Alexander Stefánsson (HK)
2. sæti – Kristján Valdimarsson og Hafsteinn Valdimarsson (Hamri)
3. sæti – Aðalsteinn Eymundsson og Arnar Halldórsson (HK)
Hér má sjá myndir sem teknar voru af ljósmyndara Hvergerðinga
https://www.facebook.com/permalink.php?story_fbid=154552244739743&id=100005549041816
https://www.facebook.com/permalink.php?story_fbid=154544711407163&id=100005549041816
https://www.facebook.com/permalink.php?story_fbid=154527398075561&id=100005549041816
https://www.facebook.com/permalink.php?story_fbid=154520794742888&id=100005549041816
https://www.facebook.com/permalink.php?story_fbid=154298151431819&id=100005549041816