Knattspyrnudeild Hamars heldur mót fyrir knattspyrnumenn 35 ára og eldri í Hamarshöllinni í Hveragerði laugardaginn 20. apríl. Veðurspáin í Hamarshöllinni fyrir leikdag er góð, hiti um 18°c, logn og blíða. Áhugasamir hópar og lið eru hvött til að skrá sig í mótið sem fyrst til að tryggja sér þátttöku.
Fyrirkomulag mótsins:
-Leikið er í 6 manna liðum (stuðst er við reglur KSÍ um keppni 7 manna liða).
-Stærð vallar er 42 x 32 metrar (1/4 af fullum velli).
-Hver leikmaður er aðeins hlutgengur með einu liði í mótinu.
-Dómgæsla er í höndum mótshaldara.
Verðlaun:
Verðlaunapeningar verða veittir fyrir þrjú efstu sætin og hlýtur sigurliðið einnig bikar og verðlaun frá styrktaraðilum.
Skráning:
Þátttöku ber að tilkynna í síðasta lagi mánudaginn 15. apríl á netfangið: motahaldhamars@gmail.comog í síma: 843-0672 (Sverrir)
Með þátttökutilkynningunni er nauðsynlegt að með fylgi upplýsingar um nafn tengiliðs hjá viðkomandi liði ásamt símanúmeri og netfangi.
Þátttökugjald í mótið er kr. 15.000.- á lið sem ber að greiða um leið og mótshaldari hefur staðfest þátttöku viðkomandi liðs.