Leikmennirnir sem um ræðir eru Andy Pew, Andri Magnússon, Högni Haraldsson, Jón Steinar Ágústsson og Vignir Daníel Lúðvíksson.
Pew er mikill liðstyrkur en hann er enskur miðvörður og kemur frá Árborg, þar sem hann spilaði alla leikiina í deildinni í fyrra og skoraði eitt mark. Hann lék einnig með Selfyssingum 2006 og 2007.
Högni er fæddur árið 1986 en hann er uppalinn hjá ÍA´og kemur til okkar eftir árs frí frá knattspyrnuiðkunn en áður spiaði hann með Skallagrími og ÍA í þriðju deildinni.
Jón Steinar er uppalinn Víkingur en hann hefur leikið með Berserkjum undanfarin ár. Síðastliðið sumar skoraði hann 7 mörk í 16 leikjum í þriðju deildinni.
Vignir Daníel er fæddur árið 1992 en hann lék með öðrum flokki Fram í fyrra. Vignir hefur leikið með FH í yngriflokkum og á 1 leik með Fjarðabyggð í fyrstu deildinni.
Andri er einnig fæddur árið 1992 og er uppalinn hjá FH en hann lék með öðrum flokki Fram síðari hlutann á síðasta tímabili.
Á myndinni má sjá Andy Pew ásamt Salih Heimi Porca þjálfara Hamars og Eyjólfi Harðarsyni formanni meistaraflokksráðs.