Íslandsmótið í almennum fimleikum var haldið á Akranesi helgina 9.-11. nóvember.
Fimleikadeild Hamars sendi um 30 keppendur á mótið með glæsilegum árangri og má sá úrslitin hér fyrir neðan:
9-10 ára A
- Gunnhildur F. Hallgrímsdóttir, 1.sæti gólfæfingar
9-10 ára B
- Guðjón Ingason, 1.sæti trampolín, 2.sæti samanlagt
- Esra Leon, 3.sæti trampolín, 3.sæti samanlagt
11-12 ára A
- Hekla Björt Birkisdóttir, 1.sæti trampolín, 3.sæti gólfæfingar, 2.sæti samanlagt
- Birta Marín Davíðsdóttr, 3.sæti stökk
11-12 ára B
- Gillý Ósk, 3.sæti trampolín
13-14 ára A
- Kolbrún Marín, 1.sæti trampolín, 3.sæti gólfæfingar
15-16 ára A
- Arnar Eldon, 2.sæti
Þessa dagana eru allir iðkendur að leggja lokahönd á undirbúning jólasýningar fimleikadeildarinnar sem haldin verður föstudaginn 7. desember í íþróttahúsi Hveragerðis og að þessu sinni verður þemað „Þegar Trölli stal jólunum“. Mikil spenna liggur í loftinu og má búast við stórglæsilegri sýningu eins og endranær og iðkendur bjóða alla velkomna á sýninguna.