Yngri flokkar Hamars 25.-26. okt. 2014
Krakkarnir í áttunda flokki karla og kvenna voru að keppa helgina 25.-26. Október á íslandsmótinu, stelpurnar spiluðu í Garðabæ og strákarnir í Hveragerði. Báðir þessir flokkar eru í samstarfi Hrunamanna og Hamars og báðum þessum flokkum gekk mjög vel á sínum mótum. Stelpurnar spiluð í B-riðli og voru spilaðir tveir leikir á laugardegi og tveir leikir á sunnudegi, strákarnir spiluð hinsvegar bara tvo leiki þar sem Afturelding boðaði forföll og spiluðu þeir sína leiki á laugardeginum í Dalnum. Líkt og áður sagði þá spiluðu bæði liðinn flottan körfubolta og var sérstaklega gaman að Myndbær Hvergerðis kom í heimsókn og náði nokkrum frábærum myndum af strákunum.
Stúlkur
Hamar/Hrunamenn – Stjarnan 39-15
Hamar/Hrunamenn – Ármann 35-37
Hamar/Hrunamenn – Haukar 28-29
Hamar/Hrunamenn – Breiðablik 34-23
Strákar
Hamar/Hrunamenn – ÍR 32-30
Hamar/Hrunamenn – ÍR b 71-7
Myndir af strákunum má sjá á Facebook síðu Hveragerði Mynda-bær eða í myndasafni körfuboltans hér á síðunni